Sjálfvirk ferilskráargerð
„Að búa til ferilskrá hefur aldrei verið einfaldara“
Þú velur hönnun og skrifar inn upplýsingarnar þínar. Þú sérð ferilskrána uppfærast samstundis.
12 týpur í boði · Skoða núnaEngin áskrift · 3.900 kr. · PDF án vatnsmerkis · 3 daga breytingaraðgangur
Jóna Jóns
Markaðsfulltrúi

Starfsreynsla
Dæmi ehf.
Sinnti daglegri þjónustu við viðskiptavini, vann að sölu- og þjónustumarkmiðum og tók þátt í umbótum á verkferlum.
Fyrirtæki hf.
Sinnti móttöku, bókunum og daglegri upplýsingagjöf til viðskiptavina.
Sýnileiki ehf.
Skipulagði kynningarverkefni og vann með teyminu að efni fyrir vef og samfélagsmiðla.
Menntun
Fræðileg undirstaða sem styður við faglega framsetningu og markvissa vinnu.
Nám í stafrænni markaðssetningu, samskiptum og greiningu niðurstaðna.
Skírteini
Annað
Áhugasöm um stafræna miðla, hönnun og öfluga þjónustu.
Hlý rúmfræðileg form og frjálsleg uppsetning.
Jóna Jóns
Markaðsfulltrúi
Metnaðarfull og skipulögð með reynslu af þjónustu, samskiptum og verkefnastjórnun. Ég vinn vel með fólki, tek frumkvæði og legg áherslu á fagmennsku í hverju skrefi.
Starfsreynsla
Dæmi ehf.
Sinnti daglegri þjónustu við viðskiptavini, vann að sölu- og þjónustumarkmiðum og tók þátt í umbótum á verkferlum.
Fyrirtæki hf.
Sinnti móttöku, bókunum og daglegri upplýsingagjöf til viðskiptavina.
Sýnileiki ehf.
Skipulagði kynningarverkefni og vann með teyminu að efni fyrir vef og samfélagsmiðla.
Menntun
Fræðileg undirstaða sem styður við faglega framsetningu og markvissa vinnu.
Nám í stafrænni markaðssetningu, samskiptum og greiningu niðurstaðna.
Skírteini
Annað
Áhugasöm um stafræna miðla, hönnun og öfluga þjónustu.
Stór serif fyrirsögn og mjór upplýsingadálkur.
Jóna Jóns
Markaðsfulltrúi

Starfsferill
Sinnti daglegri þjónustu við viðskiptavini, vann að sölu- og þjónustumarkmiðum og tók þátt í umbótum á verkferlum.
Sinnti móttöku, bókunum og daglegri upplýsingagjöf til viðskiptavina.
Skipulagði kynningarverkefni og vann með teyminu að efni fyrir vef og samfélagsmiðla.
Menntun
Fræðileg undirstaða sem styður við faglega framsetningu og markvissa vinnu.
Nám í stafrænni markaðssetningu, samskiptum og greiningu niðurstaðna.
Skírteini
Annað
Áhugasöm um stafræna miðla, hönnun og öfluga þjónustu.
Dökk fyrirsögn og skýr tímalína með starfsreynslu.
Búðu til ferilskrá í 3 einföldum skrefum
Veldu sniðmát
Veldu eina af 12 stílhreinum ferilskrárhönnunum.
Fylltu inn upplýsingarnar
Skrifaðu inn reynslu, menntun, hæfni og aðrar upplýsingar.
Sæktu PDF eftir greiðslu
Eftir greiðslu færðu ferilskrána sem PDF án vatnsmerkis.
Sýndu strax hvað þú hefur fram að færa
Easy CV hjálpar þér að styrkja atvinnuumsóknina með faglegri framsetningu og skýrari upplýsingum um reynslu þína og kunnáttu.
ECV Kunnáttupróf
Ert þú sérfræðingur á þínu starfssviði?
Taktu ECV Kunnáttupróf, fáðu skírteini og settu það á ferilskrána þína til að styrkja möguleika þína á atvinnuviðtali.
Af hverju skiptir góð ferilskrá svona miklu máli?
Ferilskráin þín er oft fyrsta kynningin sem atvinnurekandi fær frá þér, og þess vegna skiptir máli að hún sé skýr, vel uppsett og auðlesin. Góð ferilskrá þarf ekki að vera löng eða flókin, en hún þarf bara að sýna fljótt hver þú ert, hvaða reynslu þú hefur, hvaða hæfni þú býrð yfir og hvers vegna þú passar í starfið sem þú ert að sækja um.
Með Easy CV getur þú búið til faglega ferilskrá á íslensku án þess að eyða tíma í að stilla upp textaboxum, færa línur til eða berjast við Word-snið sem fer allt í rugl þegar þú bætir við einni setningu. Þú velur eina af 12 ferilskrárhönnunum, skrifar inn upplýsingarnar þínar og sérð ferilskrána birtast samstundis í lifandi umhverfi.
Easy CV hentar bæði þeim sem eru að búa til sína fyrstu ferilskrá og þeim sem vilja uppfæra gamla ferilskrá fyrir nýtt starf. Hvort sem þú ert að sækja um sumarstarf, þjónustustarf, skrifstofustarf, stjórnendastarf, námstengt starf eða nýtt tækifæri eftir langt hlé á vinnumarkaði, þá hjálpar góð ferilskrá þér að koma upplýsingunum þínum frá þér á faglegan og traustan hátt.
Markmiðið með Easy CV er einfalt: að gera ferilskráargerð á Íslandi fljótlegri, skýrari og aðgengilegri fyrir alla.

Lærðu að búa til betri ferilskrá
Þessar leiðbeiningar hjálpa þér að skrifa skýrari ferilskrá, velja betra sniðmát og senda frá þér faglegri atvinnuumsókn.
Ferilskrá dæmi
Skoðaðu dæmi um góða íslenska ferilskrá og hvernig hún getur verið sett upp.
Hvernig á að skrifa ferilskrá
Skref fyrir skref leiðbeiningar fyrir ferilskrá sem er skýr, snyrtileg og fagleg.
Ferilskrá sniðmát
Veldu sniðmát sem passar við starfið, reynsluna þína og umsóknina.
Fyrsta ferilskráin
Fyrir fyrstu atvinnuumsóknina, sumarstarf, hlutastarf eða fyrsta alvöru CV-ið.
Ferilskrá fyrir sumarstarf
Hvað á að setja inn þegar þú ert að sækja um sumarstarf á Íslandi.
Ferilskrá fyrir stjórnendur
Fagleg ferilskrá fyrir ábyrgð, teymisstjórnun, árangur og stjórnendareynslu.
Starfsreynsla á ferilskrá
Lærðu að skrifa starfsreynslu þannig að ábyrgð og hæfni sjáist strax.
Hæfni á ferilskrá
Hvaða hæfni á að velja, hvernig á að setja hana fram og hvað passar við starfið.
Meðmælendur á ferilskrá
Hvenær á að setja meðmælendur, hver getur verið meðmælandi og hvað þarf að koma fram.
Leitarðu að dæmi sem passar betur við þig? Skoðaðu ferilskrá án reynslu, ferilskrá fyrir nemendur, ferilskrá fyrir þjónustustarf eða dæmi um kynningarbréf.
Vantar þig hugmyndir að því hvað þú átt að skrifa?
Það er eitt að velja fallega ferilskrárhönnun, en annað að vita hvað maður á í raun að skrifa. Í hugmyndabankanum okkar getur þú valið starfsgrein og fengið hugmyndir að hæfni, persónulegri kynningu og starfsreynslutexta sem þú getur notað sem innblástur og lagað að þinni eigin reynslu.
Ég er þjónustulunduð/lundaður og samskiptagóð/ur einstaklingur sem leggur áherslu á góða framkomu, lausnamiðaða hugsun og jákvæð samskipti.
Af hverju treysta notendur Easy CV?
Þegar þú ert að búa til ferilskrá seturðu inn persónulegar upplýsingar, starfsreynslu og texta sem getur skipt máli fyrir næsta starf. Þess vegna þarf ferlið að vera skýrt, verðið sýnilegt og þjónustan auðvelt að skilja áður en þú byrjar.
Lesa meira um Easy CV →
Íslensk þjónusta
Easy CV er byggt fyrir íslenskan vinnumarkað, íslenskt orðalag og umsóknir sem þurfa að hljóma faglega á íslensku.
Verð sýnilegt áður en byrjað er
Þú sérð verðið strax: 3.900 kr. fyrir ferilskrá, 1.000 kr. fyrir kynningarbréf og 4.900 kr. fyrir bæði saman.
Lifandi skjal
Þú sérð ferilskrána uppfærast á skjánum á meðan þú skrifar, þannig að þú veist hvernig hún lítur út áður en þú klárar.
Breytingar í 3 daga eftir greiðslu
Þú hefur svigrúm til að laga texta, bæta við upplýsingum og fínpússa ferilskrána eftir að þú hefur greitt.
Engin þörf á Word eða Canva
Easy CV sér um uppsetninguna svo þú þurfir ekki að eyða tíma í textabox, brotin skjöl eða hönnunarforrit.
Netfang sýnilegt
Þú getur haft samband við Easy CV í gegnum hallo@easycv.is ef þú þarft aðstoð eða hefur spurningar.
Stutt svör um ferilskráargerð hjá Easy CV
Hér eru nokkrar algengar spurningar um ferilskrá, CV, hönnun, verð og hvernig Easy CV hjálpar þér að búa til faglega ferilskrá á íslensku.
Hvernig bý ég til ferilskrá hjá Easy CV?+
Þú velur ferilskrárhönnun, fyllir inn upplýsingarnar þínar og sérð ferilskrána uppfærast samstundis í lifandi skjali.
Hvað kostar ferilskrá?+
Hver ferilskrá hjá Easy CV kostar 3.900 kr.
Get ég valið mismunandi hönnun?+
Já, þú getur valið úr sjö mismunandi ferilskrárhönnunum og fundið útlit sem passar við þig og starfið.
Hentar Easy CV fyrir fyrstu ferilskrá?+
Já, Easy CV hentar mjög vel fyrir fyrstu ferilskrá, sumarstörf, starfsnám, hlutastörf og fólk með litla starfsreynslu.
Get ég séð ferilskrána áður en ég klára?+
Já, ferilskráin birtist í lifandi skjali á meðan þú skrifar, þannig að þú sérð strax hvernig hún lítur út.
Er Easy CV íslensk ferilskráargerð?+
Já, Easy CV er íslensk ferilskráargerð sem er hugsuð fyrir íslenskan vinnumarkað og ferilskrár á íslensku.
Á ég að setja mynd á ferilskrá?+
Það er valkvætt. Ef þú notar mynd ætti hún að vera skýr, snyrtileg og fagleg, en það er betra að sleppa mynd en að nota óvandaða mynd.
Getur góð ferilskrá aukið líkurnar á atvinnuviðtali?+
Já, skýr og fagleg ferilskrá getur hjálpað atvinnurekanda að sjá hraðar reynslu þína, hæfni og hvers vegna þú passar í starfið.
Sterk ferilskrá verður enn betri með skýru kynningarbréfi
Ferilskráin sýnir hvað þú hefur gert, en kynningarbréfið útskýrir af hverju þú passar í starfið. Þess vegna er oft snjallt að búa til kynningarbréf á íslensku sem talar beint við starfið, fyrirtækið og þann tón sem umsóknin þarf að hafa.
Í Easy CV geturðu byrjað á ferilskránni og bætt síðan við faglegu kynningarbréfi sem passar við sömu hönnun, eða farið beint á sér síðuna ef þú vilt aðeins útbúa kynningarbréf fyrir umsóknina þína.
Búa til kynningarbréf →Veldu hönnun, skrifaðu textann og sjáðu kynningarbréfið uppfærast strax í lifandi skjali.
Íslensk lausn fyrir íslenskan vinnumarkað
Easy CV var stofnað af Rósu Amelíu Árnadóttur með það að markmiði að gera atvinnuumsóknir einfaldari, faglegri og aðgengilegri fyrir fólk á íslenskum vinnumarkaði.
